Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Ísafjarðarbæjar og Ofanflóðasjóðs, óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við uppsetningu stoðvirkja úr stáli (snow bridges), einnig kallaðar stálgrindur eða grindur, til snjóflóðavarna á upptakasvæðum snjóflóða í Bröttuhlíð í Kubba ofan Holtahverfis á Ísafirði.
Verkaupi leggur til efni til verksins, til uppbyggingar á stálgrindum, skv. samningi við efnissala.
Áformað er að koma fyrir um 1.890 m af stálgrindum en hæð þeirra mælt þvert á halla fjallshlíðar (Dk) er 3,0 m, 3,5 m og 4,0 m. Helsu magntölur eru: Stoðvirki (Dk 3,0 m) 1.396 m. Stoðvirki (Dk 3,5 m) 434 m. Stoðvirki (Dk4,0 m) 58 m. Fótplötur 657 stk.
Vettvangsskoðun verður haldin 3. maí 2016 kl. 13:00 að viðstöddum fulltrúa verkkaupa.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en í september 2018. Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum á vef Ríkiskaupa.