Home Fréttir Í fréttum 19.05.2026 Reykja­nesbraut (41), gatna­mót Reykja­nesbrautar og Bústaða­vegar og hluti 3. lotu Borgar­línu,...

19.05.2026 Reykja­nesbraut (41), gatna­mót Reykja­nesbrautar og Bústaða­vegar og hluti 3. lotu Borgar­línu, hönn­un

27
0
Frá gatna­mót­um Reykja­nes­braut­ar og Bú­staðaveg­ar. Mynd:. mbl.is/​Brynj­ar Gauti

Vegagerðin og Veitur ohf. óska eftir tilboði í for- og verkhönnun á endurgerð gatnamóta Reykjanesbrautar og Bústaðavegar auk hönnunar á legu Borgarlínu frá Stekkjarbakka A-V að væntanlegri skiptistöð Borgarlínu í Vogabyggð sem staðsett verður við Súðarvog. Á leiðinni verða tvær nýjar brýr undir Vesturlandsveg við vestari kvísl Elliðaár, tvenn núverandi undirgöng sem þarf að lengja og ný brú fyrir rampa á gatnamótum við Bústaðaveg. Reykjanesbraut þarf að hliðfæra til vesturs á kafla til að forðast inngrip á verndarsvæði Elliðaárdals.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með mánudeginum 20. apríl 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. maí 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þriðjudaginn 2. júní 2026  verður bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.