Ein stærsta fréttin frá lokadegi Alþingis í dag er að smíði nýrrar Ölfusárbrúar var tryggð, verkefni sem áætlað er að kosti 17,9 milljarða króna. Skrifað verður undir verksamning á miðvikudag og drifið í að taka fyrstu skóflustungu, þótt enn eigi eftir að hanna brúna og langt sé í upphaf jarðsvegsvinnu.
Í fréttum Stöðvar 2 kom fram að Vegagerðin hyggst skrifa undir verksamning við ÞG-verk í Golfskálanum á Selfossi á miðvikudag og þá á strax að taka fyrstu skóflustungu.
Verkið er hins vegar í alútboði þannig að verktakinn þarf fyrst að hanna brúna og vegtengingar áður en brúarsmíðin getur farið á fullt. Verktakinn, Þorvaldur Gissurarson, sagði í samtali við fréttastofu að jarðvegsvinna hæfist ekki fyrr en undir næsta vor og sjálf brúarsmíðin sennilega ekki fyrr en haustið 2025. Einhver jarðvegssýni yrðu þó tekin fljótlega.
Svo virðist sem mönnum liggi samt á að taka fyrstu skóflustungu. Þannig hyggst innviðaráðherrann Sigurður Ingi Jóhannsson sjálfur taka hana á miðvikudag, tíu dögum fyrir alþingiskosningar. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er áformað að ráðherrann setjist upp í stóra gröfu og taki fyrstu skóflustunguna.
Rifja má upp að fyrir síðustu kosningar lofaði hann því að brúin yrði tilbúin annaðhvort síðla árs 2023 eða á árinu 2024, sem augljóslega næst ekki. Núna er gert ráð fyrir að brúin verði tilbúin eftir tæp fjögur ár og að umferð verði hleypt á hana haustið 2028.
Heimild: Visir.is