Home Fréttir Í fréttum Stöðvun megi rekja til klúðurs og skorts á fjár­magni

Stöðvun megi rekja til klúðurs og skorts á fjár­magni

96
0
Vegagerðin hefur ekki boðið út stórt verkefni í fjórtán mánuði. Vísir/Vilhelm

Fjórtán mánuðir eru síðan Vegagerðin bauð síðast út stórt verkefni. Sérfræðingur segir vandann helst liggja í skorti á fjármagni og klúðri í tveimur stórum útboðum nýlega.

<>

Fyrir liggur að samgönguáætlun til næstu fjögurra ára verður ekki lögð fyrir Alþingi fyrir kosningar í lok mánaðar. Staðan er fáheyrð og algert stopp hefur verið í útboðum. Meðal þess sem bjóða átti út á árinu var Fossvogsbrú, tvöföldun á Kjalarnesi að Hvalfjarðargöngum, brúarsmíði í Gufudalssveit og svo mætti lengi telja.

Vegagerðin þurfi aukið viðhaldsfé
Ástæðan er einkum sú að fjármögnun á brú yfir Hornafjarðarfljót á grundvelli laga um samvinnuverkefni stóðst ekki. Verkið var engu að síður sett af stað, án nægilegra fjárheimilda, og sogaði það til sín fjárveitingar úr öðrum verkum. Eins er smíði nýrrar Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis um að gjaldtaka fyrir akstur yfir brúna standi undir kostnaði og efast sérfræðingar ríkisábyrgðarsjóðs um að dæmið gangi upp.

„Ef þarfirnar ættu að vera uppfylltar þá þyrfti auðvitað Vegagerðin í fyrsta lagi að vera með viðhaldsfé fyrir þeirri þörf sem þau telja að sé lágmarkið sem er þá átján til tuttugu milljarðar ef það ætti að fara að ganga á skuldina enn meira.“

Þetta sagði Sigþór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Colas og formaður Mannvirkis, í sprengisandi á bylgjunni í morgun. Hann nefnir þá að samgöngusáttmálinn sé framkvæmd upp á þrjú hundruð milljarða.

Heimild: Visir.is