Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 18.11.2024 Sala á byggingarétti á lóðum fyrir íbúðahúsnæði að Móstekk, Selfossi

18.11.2024 Sala á byggingarétti á lóðum fyrir íbúðahúsnæði að Móstekk, Selfossi

195
0

Sveitarfélagið Árborg auglýsir til sölu byggingarétt fyrir íbúðarhúsnæði.

<>

Um er að ræða 3 lóðir fyrir alls 9 íbúðir. Tvær raðhúsalóðir og eina parhúsalóð.  Stærð lóða er á bilinu 1.198-1.530 m2.

Um er að ræða vel staðsettar lóðir nærri sterkum þjónustukjörnum.

Leitað er að kauptilboðum í lóðirnar frá einstaklingum og/eða lögaðilum sem hyggjast byggja íbúðir í samræmi við deiliskipulag svæðisins.  Svæðið er hluti af uppbyggingarsvæði á landi Bjarkar sem liggur sunnan Suðurhóla og meðfram Eyravegi.

Lóðirnar sem um ræðir eru Móstekkur 70-76, 78-82 og 84-86.  Lóðirnar verða tilbúnar til afhendingar 20.janúar 2025.

Tilboð í byggingarrétt á lóðunum ásamt umbeðnum fylgi gögnum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour (tengill hér að neðan) innan auglýsts skilafrest, sem er kl. 13:00
mánudaginn 18. nóvember 2024.

Opnun tilboða verður  framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur er liðinn. Í kjölfar opnunar verður tilboðsgjöfum sent opnunaryfirlit rafrænt.

Sjá frekar.