Reykjanesbær hyggst bjóða út smíði á föstum innréttingum í Bókasafn Reykjanesbæjar sem staðsett verður í Hljómahöll.
Um er að ræða fastar bókahyllu innréttingar misstórar, fatahengi, innbyggðir bólstaðir sófar og fl.
Unnið er að gerð verðkönnunnargagna þ.e. kröfulýsingu, efnislýsingu og magnskrá ásamt smíðateikningum. Reiknað er með að þau verði tilbúin í kringum 30 október n.k.
Gerð er krafa um að viðkomandi tilboðsgjafi hafi unnið að sérsmíði fyrir bókasafn og eða sérsmíði fyrir opinberar byggingar og hafi skilað a.m.k. einu slíku verki á síðast liðnum 5 árum.
Mikilvægt er að taka fram að verklok eru áætluð um mánaðarmótin jan/feb 2025
Áhugasömum bjóðendum er boðin þátttaka í lokuðu útboði samkvæmt 8. tölulið 2.gr. og 35. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016.
Vinsamlega sendið yfirlýsingu um skil á sambærilegu verkefni og ósk um þátttöku í verðkönnunni í tölvupósti til: innkaupastjori@reykjanesbaer.is.
Auglýst: | 31.10.2024 kl. 13:00 |
Skilafrestur | 08.11.2024 kl. 12:00 |
Þá verða send verðkönnunargögn á tengilið bjóðanda. Vinsmalega sendið inn upplýsingar um tengilið bjóðanda s.s. nafn tengiliðs, tölvupóstfang og símanúmer.
Heimild: Reykjanesbær