Home Fréttir Í fréttum Skyndifundur um Ölfusárbrú

Skyndifundur um Ölfusárbrú

83
0
Ný Ölfusárbrú við Selfoss verður 330 metra löng og stöpull fyrir miðju verður um 60 metra hár, með stögum niður að brúargólfi. Teikning/Vegagerðin

Stefnt er að því að meiri­hluti fjár­laga­nefnd­ar og um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar Alþing­is setj­ist á fjar­fund með full­trú­um ráðuneyta innviða og fjár­mála í dag, þar sem fara á yfir stöðu mála varðandi nýja brú yfir Ölfusá.

<>

Boðað var til fund­ar­ins í gær, sem heim­ild­ar­mönn­um Morg­un­blaðsins þykir óvenju­legt, þar sem nú stend­ur yfir kjör­dæm­a­vika og þing­menn á ferð og flugi. Aðstoðar­menn ráðherr­anna höfðu milli­göngu um fund­ar­boðið.

Um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd samþykkti í sl. viku ósk um minn­is­blað frá innviðaráðuneyt­inu um stöðu Ölfusár­brú­ar­verk­efn­is­ins sem og þeirra vega­fram­kvæmda sem henni tengj­ast.

Einnig er beðið um upp­færða tíma­línu fram­kvæmd­ar­inn­ar, áfall­inn kostnað, upp­færða kostnaðaráætl­un og áætlaðan fjár­magns­kostnað, en síðast þegar til áætl­un­ar­inn­ar spurðist fyr­ir ári stóð hún í 15,3 millj­örðum.

Þá ósk­ar nefnd­in eft­ir upp­lýs­ing­um um hvort ástæða sé til að end­ur­skoða hönn­un­arþátt verk­efn­is­ins m.t.t. þess að hag­kvæmni þess væri sem best tryggð. Loks vill nefnd­in fá upp­lýs­ing­ar um hvernig fjár­mögn­un verk­efn­is­ins, sem gjald­taka á að standa und­ir, falli að lög­um um sam­vinnu­verk­efni um sam­göngu­fram­kvæmd­ir og næstu skref.

Njáll Trausti Friðberts­son formaður fjár­laga­nefnd­ar seg­ir í sam­tali við Morg­un­blaðið að til standi að kynna stöðu Ölfusár­brú­ar­verk­efn­is­ins, hvort annað sé þar til umræðu viti hann ekki.

„Grunn­for­send­an er að Ölfusár­brú verði að fullu fjár­mögnuð með veg­gjöld­um og því verður ekki breytt. Ég hvika ekki frá því,“ seg­ir Njáll Trausti. Í sama streng tek­ur Bjarni Jóns­son, formaður um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar. Framúr­keyrsla eins og í Hornafirði megi ekki end­ur­taka sig.

Heimild: Mbl.is