Home Fréttir Í fréttum 11.10.2024 Ísafjarðarbær. Snjómokstur í Dýrafirði

11.10.2024 Ísafjarðarbær. Snjómokstur í Dýrafirði

34
0
Mynd: Ísafjarðarbær

Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í snjómokstur í Dýrafirði fyrir tímabilið 2024-2027, með möguleika á framlengingu um allt að 2 ár.

<>

Snjómoksturinn skal framkvæmdur í samræmi við snjómoksturreglur sveitarfélagsins, sem tryggja að allar helstu götur, bifreiðastæði og aðkomuleiðir verði mokaðar í samræmi við forgangsröðun og vinnubrögð sem koma fram í reglum Ísafjarðarbæjar.

Helstu dagsetningar:

  • Útboð auglýst: 25. september 2024
  • Fyrirspurnarfrestur: 6. október 2024
  • Lokafrestur til að skila tilboðum: 10. október 2024
  • Opnun tilboða: 11. október 2024
  • Upphaf þjónustu: 1. október ár hvert, frá 2024 til 2027
  • Lok þjónustu: 30. apríl ár hvert, frá 2025 til 2027

Frekari upplýsingar og útboðsgögn:
Útboðsgögnin skal nálgast beint hjá umsjónarmanni útboðsins, Eyþóri Guðmundssyni, með því að senda tölvupóst á eythorgu@isafjordur.is.

Skil á tilboðum:
Tilboðum skal skila á rafrænu formi á netfangið eythorgu@isafjordur.is, merkt Tilboð í snjómokstur í Dýrafirði. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar tilboði hefur verið skilað.

Heimild: Ísafjarðarbær