Home Fréttir Í fréttum Fyrsta skóflustungan að nýju íþróttahúsi í Árnesi

Fyrsta skóflustungan að nýju íþróttahúsi í Árnesi

49
0
Ljósmynd: Skeiða- og Gnúpverjahreppur.

Fyrsta stunguskóflan að nýju fjölnota íþróttahúsi í Árnesi var tekin við mikinn fögnuð 18. september sl. Unglingadeild Þjórsárskóla, sem er jafnframt fyrsti bekkurinn sem klárar skólagöngu sína í Þjórsárskóla og verður elsti árgangur skólans í þrjú ár, tók skóflustunguna ásamt fulltrúum Ungmennafélags Skeiðamanna og Ungmennafélags Gnúpverja.

<>

ftir athöfnina var gestum boðið upp á kaffi í Þjórsárskóla þar sem hægt var að sjá þær breytingar sem gerðar hafa verið innanhúss í sumar.

Um er að ræða eina stærstu framkvæmd í sögu Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem mun gjörbylta aðstöðu til íþróttaiðkunar ásamt því að skapa forsendur fyrir samfellu í skóla-, frístunda- og íþróttastarfi.

Nýja íþróttahúsið.

Íþróttahúsið verður 3.618 fermetrar að stærð og í því verða, auk íþróttasals; búningsklefar, matsalur, skrifstofuaðstaða og líkamsræktaraðstaða, ásamt því að gert er ráð fyrir að byggð verði sundlaug við húsið.

Heimild: Dfs.is