Home Fréttir Í fréttum Stækkun Höfða á Akranesi – undirritun viljayfirlýsingar

Stækkun Höfða á Akranesi – undirritun viljayfirlýsingar

69
0
Samningur um viljayfirlýsingu undirritaður. F.v. Andrea Ýr Arnardóttir oddviti Hvalfjarðarsveitar, Einar Brandsson formaður stjórnar Höfða, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi. Ljósmyndir: mm hjá Skessuhorni

Þann 5. september s.l. var skrifað undir viljayfirlýsingu  Akraneskaupstaðar, Hvalfjarðarsveitar og Heilbrigðisráðuneytisins um stækkun Höfða .

<>

Það voru Andrea Ýr Arnardóttir oddviti Hvalfjarðarsveitar, Einar Brandsson formaður stjórnar Höfða, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi sem undirrituðu yfirlýsinguna fyrir hönd sveitarfélaganna og heilbrigðisráðuneytisins.

Með yfirlýsingunni er stefnt að því að fjölga hjúkrunarrýmum um 29 og er það um 40% stækkun. Viljayfirlýsingin er með fyrirvara um fjárveitingu til verksins.

Heimild: Akranes.is