Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 24.09.2024 Borgar­lína Lota 1, Suður­lands­braut – Lauga­vegur, hönn­un

24.09.2024 Borgar­lína Lota 1, Suður­lands­braut – Lauga­vegur, hönn­un

114
0
Teikning sýnir vagninn bruna eftir Suðurlandsbrautinni.

Vegagerðin býður hér með út hönnun Borgarlínunnar Lotu 1 eftir Suðurlandsbraut og Laugavegi.

<>

Um er að ræða forhönnun á einum verkhluta og verkhönnun á alls sex verkhlutum og eru verkmörk frá austari enda Suðurlandsbrautar (Suðurlandsbraut 72) að gatnamótum Hverfisgötu og Snorrabrautar.

Kaflinn er alls um 3,7 km. Innifalið í verkinu er m.a. hönnun gatna, gatnamóta sem ýmist eru ljósastýrð eða ekki, stíga, gangstétta, gróðursvæða, lýsingar, ofanvatnslausna, aðlögun borgarlínustöðva að umhverfi og gerð útboðsgagna.

Áætlað vinnuframlag ráðgjafa er 9.400 klst.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og á grundvelli matsþátta og verðs . Ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en nóvember 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 24. maí 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. september 2024.

Ekki verða haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þann 24. september  2024 verður bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign