Bifreiðastöð ÞÞÞ á Akranesi fékk nýja eigendur í fyrra en fyrrum eigendur voru með ríflega 900 milljónir í fjármagnstekjur árið 2023.
Þórður Þ. Þórðarson og Ólafur Þórðarson, fyrrverandi eigendur Bifreiðastöðvarinnar ÞÞÞ á Akranesi voru samanlagt með ríflega 900 milljónir króna í fjármagnstekjur í fyrra samkvæmt álagningarskrá ríkisskattsstjóra.
Þórður fór með 66,6% hlut í fyrirtækinu samkvæmt ársreikningi 2022 og námu fjármagnstekjur hans 617 milljónum króna. Ólafur átti 33,3% hlut en fjármagnstekjur hans námu 290 milljónum.
Samkvæmt frétt Skessuhorns var skipt um eigendur um miðjan marsmánuð 2023 en fyrirtækið var stofnað árið 1927 og hafði verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá stofnun. Fyrirtækið Snókur eignarhaldsfélag tók við rekstrinum.
Hagnaður Bifreiðastöðvar Þórðar Þ. Þórðarsonar nam 66 milljónum króna í fyrra, samanborið við 34 milljónir árið 2022. Tekjur námu 838 milljónum og jukust um ríflega 170 milljónir milli ára.
Heimild: Vb.is