Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið „Rómarstígur Suðureyri, hellulögn“.
Um er að ræða uppúrtekt, lagningu frárennslis og vatnslagna og hellulögn.
Helstu stærðir eru:
Frárennslislagnir: 62 m
Gröftur 93 m³
Hellulögn 308 m²
Verkið skal vera að fullu lokið 15. september 2016.
Útboðsgögn verða afhent hjá Ísafjarðarbæ, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði frá og með 28. apríl 2016. Tilboðin verða opnuð hjá Ísafjarðarbæ í Stjórnsýsluhúsinu, 2. hæð, 12. maí 2016 klukkan 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.