Vegagerðin óskar eftir tilboðum í viðgerðir á steypu á undirgöngum á Reykjanesbraut skammt sunnan við gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar.
Helstu magntölur eru:
- Múrviðgerðir (5-10 mm) 8 m2
- Múrviðgerðir (10-50 mm) 22 m2
- Múrviðgerðir, kantur 17 m
- Múrviðgerð, punktar 12 stk.
- Viðgerð bendijárns 30 m
- Hreinsun og kústun 390 m2
Verki skal að fullu lokið 1. september 2016.
Útboðsgögn eru seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 3. maí 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 18. maí 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.