Home Fréttir Í fréttum Sam­starfi um milljarðauppbyggingu slitið

Sam­starfi um milljarðauppbyggingu slitið

56
0
Hlutirnir gengu ekki upp hjá þeim Davíð Torfa forstjóra Íslandshótela og Finni Aðalbjörnssyni eins aðaleigenda Skógarbaðanna. Finnur stefnir þó enn á uppbyggingu hótels á svæðinu. vísir

Íslandshótel og Skógarböðin hafa slitið samstarfi um uppbyggingu og rekstur hótels við Skógarböðin í Eyjafirði sem áætlað var að opna á vormánuðum 2026. Viljayfirlýsing um samstarf var undirrituð í ársbyrjun en reiknað var með fjárfestingu upp á um fimm milljarða króna.

<>

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu, en hvorki eigendur Skógarbaðanna né forstjóri Íslandshótela vildu tjá sig við fréttastofu um ástæður þess að samstarfinu var slitið þegar eftir því var leitað. Í tilkynningu segir aðeins að „of mikið beri í milli hvað hugmyndir um framhaldið varðar“. Eigendur Skógarbaðanna stefna enn á að reisa þar hótel.

Í vor voru aðilar stórhuga um uppbygginguna. Fjögurra stjörnu hótel við hlið baðanna skyldi rísa í Eyjafirði, með 120 herbergi, fjögurra hæða, auk þakhæðar með útsýni yfir fjörðinn. Reiknað með að fjárfestingin í hótelinu verði um fimm milljarðar króna og áætlað að það opni á vormánuðum 2026.

Í tilkynningunni segir að viðræður hafi staðið yfir síðustu mánuði og að Íslandshótel hafi slitið því samstarfi í lok júlí.

„Þrátt fyrir góða samvinnu teljum við að of mikið beri í milli hvað hugmyndir um framhaldið varðar og því sé ekki grundvöllur fyrir frekara samstarfi af okkar hálfu,“ er haft eftir Davíð Torfa Ólafssyni, forstjóri Íslandshótela.

„Hlutirnir gengu ekki jafn hratt fyrir sig og vonast var eftir. Byggingarleyfi og annar undirbúningur dróst en við höldum okkar striki og okkar markmið er eftir sem áður að reisa glæsilegt hótel við Skógarböðin,“ er haft eftir Sigríði Maríu Hammer, stjórnarformanni Skógarbaðanna.

„Skógarböðin leita nú að nýjum samstarfsaðilum, bæði fjárfestum fyrir fasteign og rekstraraðilum hótels. Íslandshótel munu setja aukinn kraft í önnur spennandi verkefni, þar á meðal byggingu nýs hótels á svokölluðum Sjallareit á Akureyri,“ segir í lok tilkynningar.

Teikning fyrir hótelið sem rísa átti.
íslandshótel

Heimild: Visir.is