Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 10.09.2024 Hlaðhamrar 52 – Leiksskóli. Endurgerð og viðbygging

10.09.2024 Hlaðhamrar 52 – Leiksskóli. Endurgerð og viðbygging

245
0
Skjáskot: Google Maps

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Hlaðhamrar 52 – Leiksskóli. Endurgerð og viðbygging, útboð nr. 16043.

Lýsing á verki:

Núverandi húsnæði er gamalt gæsluvallahús og hefðbundin færanleg stofa sem bætt var við síðar samtals 126 m². Endurgera á eldra húsnæðið og stækka.

Stækkunin er ein leikskólastofa, eldhús og tengibygging samtals 196,5 m². Eftir stækkun verður húsnæðið samtals 322,5 m². Núverandi húsnæði er byggt úr timbri og verður viðbygging einnig byggð úr timbri.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00: þann 21. ágúst 2024.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 10. september 2024.

Sjá frekar.