Landsvirkjun hefur lagt fram óskuldbindandi tilboð í Toppstöðina í Elliðaárdal, sem nú er í eigu Reykjavíkurborgar. Um er að ræða tilboð í Toppstöðina sjálfa og lóð undir bílastæði, upp á samtals 725 milljónir króna.
Frá þessu greinir Landsvirkjun í Facebook-færslu.
Tilboðið er lagt fram með það í huga að færa höfuðstöðvar Landsvirkjunar í Toppstöðina en í færslunni segir að Toppstöðin sé meðal nokkurra kosta sem verið sé að skoða.
„Um aldamótin kannaði Landsvirkjun möguleikann á nýjum höfuðstöðvum við Rafstöðvarveg 4, en á þeim tíma hugðist Reykjavíkurborg rífa húsið. Þar sem Reykjavíkurborg hefur nú hætt við þau áform ákvað Landsvirkjun að kanna þennan möguleika betur,“ segir í Facebook-færslunni.
Þá er vísað til þess að fyrirtækið hafi neyðst til að rýma höfuðstöðvar sínar við Háaleitisbraut í fyrra, eftir að mygla greindist í húsinu. Ákveðið hefur verið að selja það húsnæði.
„Höfuðstöðvar orkufyrirtækis þjóðarinnar eru núna í leiguhúsnæði að Katrínartúni 2 og hafa verið kannaðir möguleikar á að leigja eða kaupa nýjar höfuðstöðvar, eða byggja þær frá grunni. Húsið að Rafstöðvarvegi 4 er einn af þeim kostum sem horft hefur verið til.“
Tilboð Landsvirkjunnar gerir ráð fyrir að ásýnd Toppstöðvarinnar verði færð nær upprunalegu útliti frá 1948 og áhersla lögð á að halda í sögulegt viðmót byggingarinnar. Þá verði leitast við að endurnýta núverandi mannvirki, eftir því sem nútímakröfur leyfa.
Rekstri toppstöðvar við Rafstöðvarveg var hætt árið 1980. Um tíma var rekið frumkvöðlasetur í húsnæðinu, þar sem listafólk hafði meðal annarst aðstöðu, en húsið hefur verið tómt síðustu misseri.
Heimild: Visir.is