Home Fréttir Í fréttum 19.05.2016 Hornafjörður „Vöruhúsið, Hafnarbraut 30 miðstöð skapandi greina“

19.05.2016 Hornafjörður „Vöruhúsið, Hafnarbraut 30 miðstöð skapandi greina“

174
0
Hornafjörður

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið Vöruhúsið, Hafnarbraut 30 miðstöð skapandi greina – apríl 2016“ eins og því er lýst í útboðsgögnum.

<>

Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Fyrirhugaðar eru heildar endurbætur innandyra í Vöruhúsinu sem verður gert í áföngum.

  1. áfangi verksins sem þetta útboð felur í sér felast í endurbótum á hluta af kjallara hússins.

Svæðið sem um ræðir innandyra er þar sem stafsemi Félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunar verður og véla og málmsmíði á vegum Framhaldsskóla Austur Skaftafellssýslu ásamt stoðrýmum þeirra. Einnig verða rými inntaks og tæknirými því tengdu með í þessum áfanga.

Utanhúss eru verkliðir tengdum utanhúsviðhaldi og endurbótum. Þar má nefna viðgerðir veggflata, glugga, glers og opnanlegra faga ásamt því að nokkur fjöldi glugga verða endurnýjaðir. Einnig á að mála alla steypta veggfleti utanhúss sem og allt tréverk.

 

Innanhúss eru helstu verkþættir:

Rif og förgun á núverandi veggjum, gólfum og loftum og lögnum. Smíði nýrra milliveggja, innihurða og –glugga. Smíði nýrra lofta, lagningu nýrra gólfefna og smíði og uppsetning fastra innréttinga. Endurnýjun neysluvatns-, hita-, og frárennslislagna eftir þörfum. Endurnýjun raflagna, tölvulagna, og uppsetningu öryggis- og brunakerfa. Endurnýjun loftræstilagna.

Nettófermetrar innanhúss eru ca. 250m2 og brúttó ca. 295m2.

 

Utanhúss eru helstu verkþættir:

Múrviðgerðir, háþrýstiþvottur og málun steyptra veggflata og tréverks. Endurnýjun og viðgerðir á gluggum og hurðum eftir þörfum og endurnýjun alls glers.

 

Útboðið innfelur fullnaðarfrágang á öllum verkþáttum útboðssins.

Útboðsgögn má nálgast á usb lykli á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjarðar að Hafnarbraut 27 Höfn gegn 3.000 kr. greiðslu eða hér á heimasíðu sveitarfélagsins http://www.hornafjordur.is/stjornsysla/utbod/nr/12021?CacheRefresh=1# þar er hægt að sækja útboðsgögnin án endurgjalds og fá lykilorð til að opna gögnin með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is Vinsamlegast takið fram í subject „Vöruhús gögn“.

Útboðsgögn

                Útboðslýsing

Verklýsingar

Teikningar hönnuða

Magnskrár og tilboðsblað

 

Tilboðsgjafar skulu vera búnir að skila inn tilboði eigi síðar en fimmtudaginn 19. maí 2016 kl. 14:00. er þau verða opnuð samtímis í viðurvist þeirra bjóðenda sem óska eftir að vera viðstaddir .

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.

Nánari upplýsingar veitir:

Björn Imsland,                          bjorni@hornafjordur.is sími 470-8000 eða 894-8413

Gunnlaugur Róbertsson           gunnlaugur@hornafjordur.is        sími 470-8000