Home Fréttir Í fréttum Fyrsta uppbyggingin frá því að varnarliðið fór

Fyrsta uppbyggingin frá því að varnarliðið fór

86
0
Búið er að skrifa undir samning um uppbyggingu að lágmarki 150 íbúða. mbl.is/Anton Brink

Búið er að semja um fyrstu hús­næðis­upp­bygg­ing­una á Ásbrú í Reykja­nes­bæ frá því að varn­ar­lið Banda­ríkja­hers fór árið 2006.

<>

Gert er ráð fyr­ir lág­reistri byggð fjöl­býl­is­húsa og munu í upp­hafi vera byggðar að lág­marki 150 íbúðir. Lögð verður áhersla á að skapa grænt og barn­vænt um­hverfi.

Fyrr í dag skrifuðu Kadeco [Þró­un­ar­fé­lag Kefla­vík­ur­flug­vall­ar], Reykja­nes­bær og bygg­inga­fé­lagið Stofn­hús und­ir samn­ing um þróun og upp­bygg­ingu íbúðabyggðar á svo­nefnd­um Suður­braut­ar­reit á Ásbrú.

Fyr­ir­huguð upp­bygg­ing á Ásbrú. Tölvu­teiknuð mynd/​Kadeco

33 þúsund fer­metra reit­ur
Reit­ur­inn er miðsvæðis á Ásbrú og um 33 þúsund fer­metr­ar að flat­ar­máli.

Deili­skipu­lag um svæðið verður gert á grunni nýs ramma­skipu­lags fyr­ir Ásbrú þar sem gert er ráð fyr­ir byggð í anda þess byggðamynst­urs sem fyr­ir er á svæðinu.

Áhersla er meðal ann­ars á blágræn­ar of­an­vatns­lausn­ir og grænt og barn­vænt um­hverfi. Gert er ráð fyr­ir að deili­skipu­lag fyr­ir reit­inn verði kynnt og aug­lýst næsta vet­ur. Þess er vænst að upp­bygg­ing geti haf­ist fljót­lega í kjöl­farið, að er kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Kadeco.

Heimild:Mbl.is