Vegagerðin býður hér með út í festun burðarlags með sementi, útlögn burðarlags og tvöfalda klæðingu á vegum á Norðursvæði 2024.
| 
 Festun með sementi 
 | 
 15.600 m2 
 | 
| 
 Þurrfræsing 
 | 
 27.200 m2 
 | 
| 
 Tvöföld klæðing 
 | 
 42.600 m2 
 | 
| 
 Efra burðarlag afrétting 
 | 
 3.800 m3 
 | 
Verklok eru 15. september 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með 25. júní 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. júlí 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
		
	











