Home Fréttir Í fréttum Skóflum stungið niður og jarðvinna hafin við gervigrasvöll í Hveragerði

Skóflum stungið niður og jarðvinna hafin við gervigrasvöll í Hveragerði

18
0
Fyrsta skóflustungan að gervigrasvelli í Hveragerði. Ljósmynd/Hveragerðisbær

Fyrsta skóflustungan að gervigrasvelli á íþróttasvæði Hamars í Hveragerði var tekin síðastu viku.

<>

Halldór Benjamín Hreinsson, forseti bæjarstjórnar, Þorsteinn Ragnarsson, formaður Hamars og Eydís Valgerður Valgarðsdóttir, formaður knattspyrnudeildar Hamars, tóku skóflustunguna og nutu við það liðsinnis ungra knattspyrnuiðkenda félagsins.

Að skóflustungunni lokinni bauð Hveragerðisbær upp á pylsur og gos áður en viðstaddir færðu sig yfir á Grýluvöll til að fylgjast með leik Hamars og Ýmis. Heimamenn gerðu sér lítið fyrir og unnu leikinn 5-2.

Afstöðumynd af væntanlegum gervigrasvelli. Núverandi vallarhús er fyrir miðri mynd og Grýluvöllur neðst til hægri.

Jarðvinna er þegar hafin vegna nýja vallarins en það er verktakinn Auðverk ehf. sem sér um jarðvegsvinnuna í fyrsta fasa verksins. Gert er ráð fyrir að æfingar hefjist á nýju gervigrasi snemma á komandi vetri.

Heimild: Sunnlenska.is