Fokdýrum framkvæmdum við niðurrif gamla frystihússins á Kirkjusandi fer senn að ljúka og stefnt á að hefja uppbyggingu yfir tvöhundruð íbúða á svæðinu í haust. Árum saman hefur húsið staðið tómt síðan rakaskemmdir komu í ljós.
Það er ekki mikið eftir af byggingunni hér á Kirkjusandi. Niðurrifsverkefnið er flókið, einkum í ljósi þess að í húsinu var mygla og önnur spilliefni, svo allt þurfti að flokka og efninu að farga eftir kúnstarinnar reglum.
„Hér er verið að rífa gamla frystihúsið á Kirkjusandi, og Íslandsbankahúsið eins og flestir þekkja það. Þetta er ofsalega gleðilegt að þessum kafla í sögu svæðisins er loksins að ljúka,“ segir Kjartan Smári Höskuldsson framkvæmdastjóri Íslandssjóða.
Húsið hefur staðið tómt síðan 2017 þegar í ljós komu rakaskemmdir, en niðurrifið sjálft hófst ekki fyrr en fyrir um þremur mánuðum.
„Þetta var flókið verkefni. Útaf þessum skemmdum þá þurfti að tæma húsið að innan, skræla allt lífrænt efni, hreinsa það, flokka það og koma því á réttu staðina. Þannig að núna er kannski einfaldi hlutinn eftir en jafnframt sá dramatískasti sem er auðvitað að rífa sjálfa bygginguna,“ segir Kjartan. Áætlað er að verkinu verði lokið eftir nokkrar vikur.
„Það er mikið af stáli í þessu, steypustirktarjárni þannig að hér eru öflugar græjur að verki og þetta mun taka nokkrar vikur í viðbót en meiningin er að svæðið verði tilbúið til uppbyggingar næsta haust.“
Til stendur að reisa 220 fjölbreyttar íbúðir á svæðinu.
„Þetta er rándýrt. En þetta mun borga sig á endanum. Markmiðið var alltaf hér að byggja upp flott, gott borgarhverfi og það er alveg morgunljóst í mínum huga að það er að takast,“ segir Kjartan.
Heimild: Visir.is