Home Fréttir Í fréttum 26.04.2016 Ölduselsskóli, endurgerð lóðar 2016, 3. áfangi

26.04.2016 Ölduselsskóli, endurgerð lóðar 2016, 3. áfangi

451
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:  Ölduselsskóli, endurgerð lóðar 2016, 3. áfangi – útboð nr. 13681.

<>

Útboðsgögn á geisladiski verða seld á 3.000 kr. frá og með mánudeginum 11. apríl 2016 í afgreiðslu þjónustuvers Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12 – 14, 105 Reykjavík.

Opnun tilboða: Þriðjudaginn 26. apríl 2016 kl. 10:00 í Borgartúni 12-14. Tilboðum skal skilað í þjónustuver Reykjavíkurborgar.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið er 3. áfangi í endurgerð lóðar Ölduselsskóla við Öldusel 17, 109 Reykjavík. Í þessum áfanga er portið milli skóla og sundlaugar ásamt boltavelli norðan við skólann, um það bil 2.350 m². Um er að ræða fullnaðarfrágang á viðkomandi svæðum. Þar koma leiktæki og íþróttasvæði. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, malbikun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.

Verkkaupi leggur til leiktæki, fallvarnarefni, gervigras og yfirborðsmeðhöndlun (málning, gúmmi) malbiks og verða þeir verkliðir unnin af verktökum / aðilum á vegum söluaðila (leiktæja og yfirborðsefna) samhliða öðrum verkþáttum verktaka.

Framkvæmdatími – verklok

Framkvæmdatími hefst þegar verkkaupi hefur með formlegum hætti tekið tilboði verktaka.

Verktaki þarf að skila undirvinnu á leiksvæðum fyrir 1. júlí 2016 vegna uppsetningar leiktækja, fallvarnarefnis og gervigrass. Uppsetning þeirra verður á vegum söluaðila búnaðarins á tímabilinu 2. júlí til 5. ágúst 2016.

Verktaki þarf að samræma sína vinnu gagnvart öðrum framkvæmdaraðilum á lóðinni og taka fullt tillit til þeirra vinnu.

Þar sem framkvæmdir fara fram að hluta til á leikskólatíma, skal verktaki taka fullt tillit til þeirrar starfssemi. Þetta á bæði við um umferð og hávaða vegna vinnu og vinnuvéla. Hann skal sjá til þess að vinnusvæði sé afgirt og umferð vinnuvéla um svæði utan afgirts vinnusvæðis eigi sér ekki stað án þess að aðstoðarmaður gæti þess að engin börn séu í hættu.