Home Fréttir Í fréttum 29.06.2024 Vetrarþjónusta gatna í Reykjavík 2024-2025, Stofnleiðir

29.06.2024 Vetrarþjónusta gatna í Reykjavík 2024-2025, Stofnleiðir

89
0
Mynd: STÖÐ 2/SKJÁSKOT

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Vetrarþjónusta gatna í Reykjavík 2024-2025, Stofnleiðir, útboð nr. 16034

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið felst í hálkueyðingu og snjóhreinsun gatna í Reykjavík. Reykjavíkurborg er skipt upp í 8 svæði. Svæði eru svipuð að stærð og gengið út frá því að ein vörubifreið geti annað snjóruðningi og hálkuvörnum á hverju svæði.

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 15:00: þann 25. júní 2024.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 29. júlí 2024.