Home Fréttir Í fréttum Ný flug­stöð í Nuuk opnuð á mánu­dag

Ný flug­stöð í Nuuk opnuð á mánu­dag

16
0
Nýja flugstöðvarbyggingin í Nuuk. GREENLAND AIRPORTS

Stór áfangi næst í flugvallauppbyggingu Grænlands á mánudag þegar ný flugstöð verður opnuð í höfuðstaðnum Nuuk. Byggingin er um áttaþúsund fermetrar að stærð og er henni ætlað að rúma áttahundruð farþega samtímis, fjögurhundruð brottfararfarþega og fjögurhundruð komufarþega.

<>

„Þetta er stór áfangi, ekki bara fyrir okkur heldur allt Grænland. Við erum meira en stolt og ánægð og hlökkum til að taka á móti fyrstu farþegunum og viðskiptavinunum,“ segir forstjóri flugvallafélags Grænlands, Jens Lauridsen, í fréttatilkynningu.

Byggingin er glæsileg að innan sem utan.
GREENLAND AIRPORTS

Með opnun nýju flugstöðvarinnar flyst bæði innanlands- og millilandaflug úr gömlu flugstöðinni. Það þýðir að hér eftir þurfa allir brottfararfarþegar um Nuuk-flugvöll að fara í gegnum vopnaleit sem annars hefur ekki tíðkast í innanlandsflugi á Grænlandi.

Stærstu tímamótin verða þó síðar á árinu, eftir fimm mánuði, þann 28. nóvember 2024, þegar nýja flugbrautin verður opnuð í fullri lengd, 2.200 metra löng. Nuuk tekur þá við hlutverki Kangerlussuaq sem aðalflugvöllur Grænlendinga. Þar með verður hægt að hefja beint þotuflug milli langstærsta bæjar Grænlands og umheimsins.

Heimild: Visir.is