Home Fréttir Í fréttum Toppstöðin nú til sölu og þessu þurfa áhugasamir að huga að

Toppstöðin nú til sölu og þessu þurfa áhugasamir að huga að

97
0
Mynd/Reykjavíkurborg

Reykjavíkurborg auglýsir eftir áhugasömum kaupendum að Toppstöðinni við Rafstöðvarveg í Elliðaárdal.

<>

Um er að ræða rúmlega sex þúsund fermetra byggingu sem var tekin í notkun árið 1948 sem olíu- og kolakynt vararafstöð til þess að taka á móti helstu álagspunktum í raforkuþörf og hitaveitu og dregur nafn sitt frá því hlutverki.

Starfsemi Toppstöðvarinnar sem varaaflsstöð lagðist að mestu leyti af árið 1981. Félagasamtökin Toppstöðin hafa frá árinu 2007 rekið frumkvöðlastarfsemi í hluta hússins. Engin starfsemi er í stöðinni í dag.

Segir í sölutilkynningu borgarinnar að rafstöðvarsvæðið í heild sé merkilegt í sögulegu samhengi og tengist tækni, hugviti og rafvæðingu frá upphafi byggðar í Reykjavík.

Með hliðsjón af þessu sögulega mikilvægi hússins og staðsetningu verður haldin samkeppni þar sem kaupverð verður metið 75% til móts við aðra þætti sem telja 25%. Matshópur mun meta tillögur og leggja fyrir borgarráð bestu hugmyndina.

Matsþættir tilboða verða eftirfarandi:

  • Gæði og tengsl við  umhverfi, náttúru og útivist – allt að 7 stig
  • Samfélagslega ábyrg framtíð – allt að 3 stig
  • Hugmyndafræði – allt að 3 stig
  • Sjálfbærni og kolefnisfótspor – allt að 3 stig
  • Framúrskarandi hönnun – allt að 3 stig
  • Frumleiki hönnunar – allt að 2 stig
  • Tengsl við nálæga byggð – allt að 2 stig
  • Nýsköpun – allt að 2 stig

Hönnun mun þannig nema allt að 25 stigum og boðið kaupverð allt að 75 stigum.

Umsóknum skal skilað hér ásamt viðhengi með upplýsingum um aðra matsþætti. Lokafrestur er 14. ágúst 2024. Auk boðins tilboðsverðs þarf að senda upplýsingar um bjóðanda ásamt lýsingu á hugmyndum hans um húsið, greinargerð og uppdrætti til skýringar.

Bjóðendur eru hvattir til að kynna sér mikilvæga þætti matsferils við val á innsendu kauptilboði. Boðið verður upp á vettvangsferð um húsið fyrir áhugasama samkvæmt samkomulagi. Óskir um slíkt berist á netfangið helena.ros.sigmarsdottir@reykjavik.is

Áhugasömum er jafnframt bent á reglur sem gilda um framkvæmdir vegna nálægðar við laxveiðiá samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði nr. 61/2006. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu borgarinnar.

Heimild: Dv.is