Home Fréttir Í fréttum 19.06.2024 Suðurborg – Endurgerð lóðar, 2. áfangi

19.06.2024 Suðurborg – Endurgerð lóðar, 2. áfangi

57
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Suðurborg – Endurgerð lóðar, 2. áfangi,  útboð nr. 16013

Lauslegt yfirlit yfir verkið:  
Verkið snýr að endurgerð á lóð leikskólans Suðurborgar við Suðurhóla 19, 111 Reykjavík. Um er að ræða endurgerð á austurhluta leikskólalóðar en það svæði er u.þ.b 2100 m² að stærð. Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki. Framkvæmdum skal vera að fullu lokið eigi síðar en 1.nóvember 2024.

Framkvæmdatími verklok : 
Verkinu telst ekki lokið af hálfu verktaka fyrr en hann hefur staðið að fullu við skuldbindingar sínar samkvæmt útboðsgögnum. Þá skal aðstaða verktaka hafa verið fjarlægð og vinnusvæðið hreinsað að fullu. Komi til vetraraðstæðna verður verkið sett í biðstöðu.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 13:30 þann 29. maí 2024.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslenskuNýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 19. júní 2024.