Vegagerðin býður hér með út gerð tveggja sjóvarna á Akureyri.
Verkið felst í endurbyggingu og hækkun á 85 m langri sjóvörn suður af Ísbryggju á Akureyri um 0,5 m og endurbyggingu og hækkun á 150 m langri sjóvörn norður af Tangabryggju á Akureyri um 1,0 m. Heildarlengd er 235m.
Helstu magntölur:
- Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 3.000 m3
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2024.
Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 27. maí 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 11. júní 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign