Home Fréttir Í fréttum Lending í Naut­hóls­vík lengi ferðina um korter til tuttugu mínútur

Lending í Naut­hóls­vík lengi ferðina um korter til tuttugu mínútur

55
0
Hópur lækna sem starfar meðal annars á þyrlum Landhelgisgæslunnar vill að þyrlupallur verði ofan á nýja Landspítalanum. VÍSIR/VILHELM

Hópur lækna á þyrlum Landhelgisgæslunnar hefur áhyggjur af því að enginn þyrlupallur verði á hinu nýja Þjóðarsjúkrahúsi við Hringbraut. Það sé allt of langt og áhættusamt að ferðast með þá allra veikustu og mest slösuðu frá þyrlupalli í Nauthólsvík. Hver einasta mínúta skipti máli.

<>

Fyrir helgi sendi hópurinn frá sér yfirlýsingu á Vísi þar sem læknarnir sögðust ekki geta orða bundist vegna framtíðarskipulags sjúkraflutninga með þyrlu. Þeir tóku mið af samkomulagi sem gert var nýverið á milli Reykjavíkurborgar og Landspítala um byggingu þyrlupalls við Nauthólsvík vegna sjúkraflugs að nýja þjóðarsjúkrahúsinu við Hringbraut.

Viðar Magnússon, einn læknanna, segir að upphaflega hafi staðið til að þyrlupallur yrði á sjúkrahúsinu sjálfu.

„Síðan virðist eitthvað hafa komið upp í þessu ferli, mögulega út frá því að Landhelgisgæslan breytti um og er núna á stærri þyrlum heldur en áður. Áður voru þyrlurnar 8,6 tonn og eru núna 11 tonna þyrlur og það krefst jú stærri þyrlupalls og betri nálgunar við pallinn, hann þarf að vera stór og sterkur og þarf að þola þessar stóru þyrlur sem eru með mikið niðurstreymi og þá þarf líka að verja gesti og gangandi niðri á jörðu og svoleiðis,“ útskýrir Viðar.

Viðar segist eindregið hafa hvatt framkvæmdastjóra nýs Landspítala, ráðherra og forstjóra Landspítala til að hafa þyrlupall á þjóðarsjúkrahúsinu en hann óttast að nú sé mikil óvissa um málið. Hver einasta mínúta skipti máli þegar verið sé að flytja þá alla veikustu og mest slösuðu. Hann telur að með því að lenda í Nauthólsvík muni það lengja ferðina um fimmtán til tuttugu mínútur þrátt fyrir að verkfræðingar hafi áætlað lenginguna níutíu sekúndur.

„En við sem störfum við þetta, læknarnir sem starfa á þyrlunni og erum ýmist að lenda með sjúklinga beint við hliðina á bráðamóttökunni í Fossvogi eða á flugvelli og flytja þá þaðan ýmist upp á Fossvog eða upp á Landspítalann við Hringbraut, við vitum það að þegar við erum með okkar veikustu sjúklinga sem hafa sem mestan búnað hangandi við sig; öndunarvélar, stuðtæki, mónitorar og alls konar dælur, þetta eru bara svo flóknir flutningar, þeir taka lengri tíma, það tekur lengri tíma að taka þá út úr þyrlunni og færa þá yfir á sjúkrabíl og úr sjúkrabílnum yfir á spítalann,“ segir Viðar.

Heimild: Ruv.is