Home Fréttir Í fréttum Kostnaður vegna upp­kaupa fjór­tán milljörðum meiri en á­ætlað var

Kostnaður vegna upp­kaupa fjór­tán milljörðum meiri en á­ætlað var

51
0
Búið er að greiða út um 28,5 milljarða til seljenda eigna í Grindavík. VÍSIR/VILHELM

Útlit er fyrir að heildarfjárfesting Þórkötlu í húsnæði í Grindavík verði allt að 75 milljarðar í heildina eða um 14 milljörðum króna meiri en áætlað var við setningu laganna um úrræðið. Aukinn kostnaður skýrist að mestu af hækkun brunabótamats á eignum í bænum. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Fasteignafélaginu Þórkötlu.

<>

Fulltrúar Þórkötlu hafa nú formlega tekið við um 30 eignum í Grindavík af seljendum. Áætlað er að taka við 170 til viðbótar í næstu viku.

„Stór hluti eignanna er í góðu ástandi. Það er töluvert um nýleg vel byggð hús í Grindavík sem sloppið hafa vel frá hamförunum hingað til.

Svo eru vissulega hús inn á milli sem þarfnast lagfæringa og einhver hús sem eru mjög illa farin og eiga sér litla framtíð.

Við munum þurfa að vinna þétt með Náttúruhamfaratryggingu Íslands við að skoða tryggingarstöðu Þórkötlu vegna þeirra eigna sem eru illa farnar,“ segir Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Þórkötlu, í tilkynningu um málið.

Þar kemur einnig fram að Þórkatla vinni nú með aðilum á svæðinu að því að skipuleggja eftirlit og umsjón með eignunum. Almennt viðhald verður í lágmarki á meðan óvissa ríkir um yfirvofandi jarðhræringar. Félagið mun á þeim tíma leggja áherslu á að fyrirbyggja frekari skemmdir.

„Þó flestir séu áhugasamir um að viðhalda byggð í bænum þá hefur ástandið tekið á fólk og því finnst gott að vera að klára þetta ferli. Það eru svo náttúruöflin sem stjórna framhaldinu en það er alltaf markmið okkar að fá sem flesta Grindvíkinga til að kaupa eignir sína til baka síðar meir. Það er mikilvægur hluti af því að styðja við framþróun Grindavíkur til framtíðar,“ segir Örn Viðar.

Umsóknir orðnar fleiri en átta hundruð

Fram kemur í tilkynningunni að umsóknir frá Grindvíkingum um sölu á fasteignum til Fasteignafélagsins Þórkötlu séu nú orðnar 812. Þegar hafa verið samþykkt kaup á um 700 eignum eða 86 prósent þeirra sem hafa sótt um.

Þá eru þinglýstir kaupsamningar að nálgast 600 en félagið hefur boðið 640 aðilum eða tæp 80 prósent umsækjenda kaupsamning til undirritunar. Seljendur hafa fengið um 28,5 milljarða greidda í kaupsamningsgreiðslu og yfirtekin lán frá lánastofnunum nema 14,5 milljörðum króna.

Heimild: Visir.is