Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Giedrius Mockus í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi vegna meiriháttar skattalagabrots. Þá ber honum að greiða ríkissjóði sekt, sem nemur rúmum 118,5 milljónum króna, innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu, annars þarf hann að sæta fangelsi í 360 daga.
Giedrius var ákærður fyrir að hafa, sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri með prókúru einkahlutafélagsins Grandaverks, staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum fyrir uppgjörstímabilin nóvember-desember rekstrarárin 2017, 2018, 2019 og 2020 og fyrir að hafa eigi staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var, eða innheimta bar, í starfseminni á þessu tímabili og standa ríkissjóði skil á.
Alls var um að ræða virðisaukaskatt sem nam tæpum 60 milljónum.
Giedrius neitaði sök og hafnaði því að þessi háttsemi væri refsiverð. Þá gerði hann engar athugasemdir við fjárhæðir sem voru tilgreindar í ákæru.
Benti Giedrius á skyldu sína
Í dómnum kemur fram að Giedrius hafi borið skylda til að gefa út sölureikninga fyrir allri útseldri þjónustu hvers mánaðar, innheimta virðisaukaskatt og standa skil á honum sérhvert uppgjörstímabili.
Þá hafi Giedrius gert samkomulag við annað einkahlutafélag um að gefa ekki út sölureikninga jafnóðum og gera margra ára verk upp við verklok. Dómurinn segir það stangast fullkomlega á við lög.
Heimild: Mbl.is