Þann 14. maí var opnun í útboði I2056 Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands – Burðarvirki og frágangur utanhúss
Eftirtaldar upphæðir eru án VSK.
Tilboð bárust frá eftirtöldum aðilum:
- ÞG Verktakar 3.436.236.643 kr. 116%
- Ístak 3.534.231.012 kr. 120%
- Eykt 3.888.620.404 kr. 132%
Kostnaðaráætlun 2.954.758.820 kr. 100%
Bygging Háskóla Íslands á Hringbrautarsvæðinu er hluti af uppbyggingu á nýjum Landspítala, en gert er ráð fyrir að Háskóli Íslands flytji nær alla starfsemi Heilbrigðisvísindasviðs í endurbættan Læknagarð og nýbyggingu sem mun rísa sunnan nýs meðferðarkjarna og tengjast Læknagarði sem er þar fyrir.
Auk nýbyggingarinnar, sem er um 8.300 m2, á að breyta skipulagi og starfsemi í Læknagarði.
Sjá nánar hérna:
Heimild: NLSH ohf