Reykjanesbæ óskar eftir tilboðum í verkið Leikskólalóð við Drekadal
Verkið felst í framkvæmdum á leiksvæði og er þessu nánar lýst í verklýsingu.
Verkið skal vinna í samræmi við ákvæði gildandi laga og reglugerða sem eiga við þessa framkvæmd og er verktaki ábyrgur fyrir því að þeim sé fylgt.
Verktaki skal skila verkinu til verkkaupa í samræmi við ákvæði útboðsgagna.
Bjóðendum er bent á að kynna sér vel allar aðstæður á vinnusvæðinu.
Útboðsyfirlit |
||
Tegund útboðs: | Opið rafrænt útboð | |
EES útboð: Nei | Nei | |
Skil tilboða . | miðvikudagur, 29. maí 2024 | kl. 11:00 |
Opnunartími tilboða: | miðvikudagur, 29. maí 2024 | kl. 11:02 |
Opnunarstaður tilboða: | Ráðhús Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ. | |
Gildistími tilboðs: | Fjórar (4) vikur frá opnunartíma tilboða. | |
Verklok: | miðvikudagur, 18. september 2024 | |
Verðlagsgrundvöllur: | Verkið verðbætist ekki | |
Frávikstilboð: | Eru ekki heimiluð |
Útboðsform:
Hér er um opið rafrænt útboð eins og lýst er í lögum um framkvæmd útboða nr. 65/1993 og ÍST 30:2012 gr. 1.2.10. Tilboð skulu send tímanlega með tölvupósti á innkaupastjori@reykjanesbaer.is
Útboðsgögn eru tilbúin og fást afhent ef ósk þar um er send á ofngreint netfang. Vinsamlega takið fram hvaða fyrirtæki óskar eftir gögnum og nöfn starfsmanna sem vinna munu tilboðið ásamt netfangi og símanúmeri þeirra.
Heimild: Reykjanesbær