Vegagerðin óskar eftir tilboðum í hjólfarafyllingar, axla- og sigviðgerðir með flotbiki og kaldbiki á Suðursvæði, Vestursvæði og Norðursvæði 2016.
Helstu magntölur:
- Heflun axla 26 km
- Hjólfarafylling með flotbiki 74.404 m2
- Afrétting með flotbiki, axlir og sigkaflar 17.913 m2
- Afrétting með kaldbiki, axlir og sigkaflar 30.273 m2
Verkinu skal að fullu lokið 1. ágúst 2016.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi, Borgarbraut 66 í Borgarnesi, Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með þriðjudeginum 12. apríl. 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðjudaginn 26. apríl 2016 og verða þau opnuð þar kl 14:15 þann dag.