Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Suðursvæði og Vestursvæði 2016.
Helstu magntölur:
- Útlögn malbiks 83.690 m2
- Hjólfarafylling 3.060 m2
- Fræsing 75.575 m2
Verkinu skal að fulli lokið 15. ágúst 2016.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi, Borgarbraut 66, í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með þriðjudeginum 12. apríl. 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðjudaginn 26. apríl 2016 og verða þau opnuð þar kl 14:15 þann dag.