F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Hverfið mitt 2024 – Austur – Grafarvogur, Grafarholt og Úlfarsárdalur, útboð nr. 15998
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum Hverfið mitt 2024 í austurhluta Reykjavíkurborgar. Verkefnin eru fjölbreytt og eru helstu verkliðir gröftur, fylling, æfingartæki, þökulögn og gróðursetning.
Helstu magntölur eru:
• Gröftur 91 m3
• Fylling 395 m3
• Jarðvegsdúkur 646 m2
• Þökulögn 1.000 m2
• Steinefni/salli 1.450 m2
• Bakkaplöntur 560 stk.
• Holuplöntur 495 stk.
• Æfingartæki 7 stk.
Verklok: 1. október 2024.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 12:00 þann 23. apríl 2024.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:15 þann 7. maí 2024.