Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 07.05.2024 Efnisvinnsla á Austursvæði 2024, klæðing og burðurlag (Hraðútboð)

07.05.2024 Efnisvinnsla á Austursvæði 2024, klæðing og burðurlag (Hraðútboð)

91
0
Mynd: Vegagerðin

Vegagerðin býður hér með út efnisvinnslu á Austursvæði. Verkið felst í framleiðsu á klæðingarefni og burðarlagi á 2 stöðum á Austurlandi.

<>

Helstu magntölur eru, (unnið í 2 námum):

– Burðarlag 0/22 mm 500 m3

– Klæðingarefni 4/8 mm 1.600 m3

– Klæðingarefni 8/11 mm 2.200 m3

– Klæðingarefni 11/14 mm 2.200 m3

– Hálkuvaranarefni 0/4 mm 2.600 m3

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 25. júní 2024.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 22. apríl 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. maí 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu