Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 07.05.2024 Dímonarvegur (250), Hringvegur – Auravegur

07.05.2024 Dímonarvegur (250), Hringvegur – Auravegur

123
0
Mynd: Vegagerdin.is

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð og endurmótun Dímonarvegar (250). Um er að ræða endurmótun á um 3 km löngum vegarkafla frá Hringvegi og rétt norður fyrir vegamót við Auraveg, auk útlagningar burðarlags og klæðingar,  breytinga á vegamótum og gerð hjáreina/vasa.

<>

Helstu magntölur eru:  

  •  – Skeringar                 3.400 m3
  • – Fyllingar                    2.400 m3
  • – Fláafleygar               1.000  m3
  • – Styrktarlag                7.500 m3
  • – Burðarlag                  3.600 m3
  • – Tvöföld klæðing        21.000 m2
  • – Frágangur fláa         21.000 m2
  • – Girðingar                    240  m

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með mánudeginum 22. apríl 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7.maí 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign