Home Fréttir Í fréttum Niðurrif varðar jafnvel þriggja ára fangelsi

Niðurrif varðar jafnvel þriggja ára fangelsi

173
0
Nikulás Úlfar Másson byggingarfulltrúi FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK

„Ég sá þetta gerast á miðvikudag. Ég varð öskureiður og hissa. Þetta er óskiljanlegt athæfi,“ segir Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi og formaður umhverfis- og skipulagsráðs, um niðurrif hundrað ára gamals húss á Tryggvagötu 12, svokallaðs Exeter-húss.

<>

Um er að ræða hús sem byggt er árið 1904 og er friðað. Samkvæmt hegningarlögum getur niðurrifið varðað allt að þriggja ára fangelsi eða sektum ef málsbætur eru.

Hjálmar segir að tafarlaust þurfi að endurbyggja húsið í upprunalegri mynd. Hins vegar þurfi að skoða hvernig það rími við stjórnsýsluna.
Mannverk ber ábyrgð á framkvæmdum á reitnum. Ávallt mun hafa staðið til að endurbyggja bæði Tryggvagötu 10 og 12 í upprunalegri mynd en með viðbótum, kjallara og aukahæð samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Veitt var leyfi til að rífa hluta hússins til undirbúnings endurbóta.

Byggingarfulltrúi borgarinnar, Nikulás Úlfar Másson, segist líta niðurrifið gífurlega alvarlegum augum. Embættið hafi kært það til lögreglu.

Nikulás Úlfar kveðst hafa fengið SMS um að verið væri að rífa húsið. Hann hafi hins vegar ekki séð það fyrr en um kvöldið.

„Það tekur stutta stund að rífa svona hús með stórvirkum vinnuvélum, líklega innan við hálftíma,“ segir Nikulás Úlfar sem kveður ekki hafa verið hægt að stöðva niðurrifið nema hafa beinlínis verið á staðnum eftir að hafist var handa með hinni stórvirku vinnuvél.

„Við vorum hins vegar mættir til að stöðva framkvæmdir á reitnum klukkan tíu mínútur í átta daginn eftir og lokuðum aðkomu að honum. Þeir fóru langt út fyrir gildandi leyfi og niðurrifið er ólöglegt. Þeir segjast hafa talið að þeir væru í fullum rétti að rífa húsið. Það væri ekkert hægt að eiga við þetta hús,“ útskýrir byggingarfulltrúinn.

Á Norðurlöndum eru víða harðar refsingar við brotum sem þessum.

Í Noregi þekkist að menn séu sviptir byggingarleyfi ævilangt og þá eiga menn yfir höfði sér fangelsisvist.

Það mun á endanum verða byggingarfulltrúi sem tekur ákvörðun um aðgerðir.

Heimild: Visir.is