Home Fréttir Í fréttum Tilboð í lokaáfanga stækkunar Dalborgar opnuð í dag

Tilboð í lokaáfanga stækkunar Dalborgar opnuð í dag

126
0
Tölvuteikning af útliti Dalborgar þegar byggingaframkvæmdum verður lokið. Mynd Fjarðabyggð.

Tilboð í þriðja og síðasta áfangann við stækkun leikskólans Dalborgar á Eskifirði verða opnuð eftir hádegi í dag.

<>

Það var Launafl sem byggði 410 fermetra viðbygginguna en framkvæmdir við hana hófust sumarið 2022.

Fyrir þremur vikum var auglýst útboð í lokaáfanga framkvæmdanna sem fela í sér lagnir, rafkerfi, frágang innanhúss, innréttingar og búnað.

Skilafrestur tilboða er til klukkan 14:00 í dag og verða tilboð opnuð klukkustund síðar.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdum verði að fullu lokið þann 30. september næstkomandi.

Heimild: Austurfrett.is