Home Fréttir Í fréttum 25.04.2024 Akranesbær. Sementsreitur – Gatnagerð og lagnir – 1. áfangi

25.04.2024 Akranesbær. Sementsreitur – Gatnagerð og lagnir – 1. áfangi

160
0
Akranesbær. Sementsreitur.

Akraneskaupstaður í samvinnu við Veitur ohf., Ljósleiðarann ehf og Mílu ehf., óskar eftir tilboði í gatnagerð, jarðvegsskipti og lagnir á Sementsreit á Akranesi.

<>

Um er að ræða jarðvegsskipti undir götur og á byggingarreit, götulýsingu, lagningu allra veitukerfa og fjarskiptalagna í hluta reitsins.

Nokkrar stærðir í verkinu: 
– Gröftur 65.000 m3,
– Fylling gatna 35.000 m3,
– Fráveitulagnir 1.100 m,
– Kaldavatnslagnir 600 m,
– Hitaveitulagnir 500 m

Verkið er með áfangaskilum 5. september 2024, 15. október 2024, 15. febrúar 2025 og verklok eru 15. apríl 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá föstudeginum 5. apríl 2024 í gegnum útboðsvef á slóðinni https://akranes.ajoursystem.net.

Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 11:00 fimmtudaginn 25. apríl 2024.  Fundargerð opnunarfundar verður send öllum bjóðendum.

Heimild: Akranesbær