Sveitarfélagið Múlaþing og Hafnir Múlaþings óska eftir tilboðum í verkið:
Steyptar gangstéttar og hellulögn í Múlaþingi 2024
Verkið felst í að steypa gangstéttar og leggja hellur í þéttbýliskjörnum Múlaþings sumarið 2024.
Helstu magntölur eru:
Steyptar gangstéttir:
- Egilsstaðir 315 m2
- Seyðisfjörður 400 m2
- Djúpivogur 865 m2
- Borgarfjörður Eystri 340 m2
Hellulögn:
- Egilsstaðir 223 m2
- Seyðisfjörður 175 m2
- Djúpivogur 90 m2
Útboðsgögn verða afhent rafrænt. Óskir um afhendingu útboðsgagna berist til Söru Kolodziejczyk á netfangið sko@efla.is.
Tilboðum skal skilað eigi síðar en þriðjudaginn 16. apríl fyrir klukkan 14:00, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.