Home Fréttir Í fréttum Hver verður iðnaðar­maður ársins 2024?

Hver verður iðnaðar­maður ársins 2024?

75
0
Það er Tommi Steindórs, dagskrárstjóri X977, sem heldur utan um leitina að Iðnaðarmanni ársins 2024, sem fer fram í samstarfi við Sindra.

Leitin að Iðnaðarmanni ársins 2024 er hafin.

<>

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar hér inni á X977.is og er fólk hvatt til að tilnefna sinn uppáhalds pípara, klæðskera, bifvélavirkja, hársnyrti, bakara, smið, rafvirkja, múrara, prentara, úrsmið eða fólk í annarri iðngrein.

Með tilnefningu þarf að setja inn mynd og stutta lýsingu á viðkomandi. Átta aðilar verða að lokum valdir úr tilnefningum af sérstakri dómnefnd og þjóðin kýs svo sigurvegarann á Vísi.

Leitin fer fram í samstarfi við Sindra sem leggur til glæsilega vinninga.

Iðnaðarmaður ársins 2024 hlýtur m.a. í vinning átta véla sett frá DeWalt að andvirði 415.896 kr.

Iðnaðarmaður ársins 2024 hlýtur í vinning átta véla sett frá DeWalt að andvirði 415.896 kr. ásamt alklæðnaði frá Blåkläder að verðmæti 158.000 kr.

Skráning hér

Heildar verðmæti vinninga er því um 573.000 kr.

Heimild: Visir.is