Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 23.04.2024 Reykjanesbraut (41), Snekkjuvogur – Tranavogur. Göngu- og hjólabrú

23.04.2024 Reykjanesbraut (41), Snekkjuvogur – Tranavogur. Göngu- og hjólabrú

81
0
Göngu- og hjólabrú yfir Sæbraut.

Vegagerðin býður hér með út samsetningu og uppsetningu færanlegrar göngu- og hjólabrúar yfir Reykjanesbraut (Sæbraut) milli Snekkjuvogs og Tranavogs ásamt lyftum og byggja tröppur og skjólbyggingu á tröppur og brú.

<>

Verkinu tilheyra ofanvatnslagnir, stíglýsing og yfirborðsfrágangur við brúarenda.

Helstu magntölur eru:

Göngu- og hjólabrú, pallar, tröppur og skjólbygging:

– Mót undirstöðu 1.450 m2
– Steypustyrktarjárn 74. 000 kg
– Steypa 530 m3
– Undirstaða fyrir geisla árekstrarhliðs 4 stk.
– Stálvirki, stöplar, smíði og uppsetning 8 tonn
– Stálvirki, brú, uppsetning 30 tonn

Vega- og stígagerð

– Gröftur fyrir leiðslum og jarðstrengjum  320 m
– Slitlagsmalbik 275 m2
– Styrktarlag 60 m2
– Staðsteyptur kantsteinn 100 m
– Bitavegrið 90 m
– Færanlegar skiltaeyjur 4 stk.
– Steinavegrið, forsteypt 40 m
– Eyjur með túnþökum 45 m2

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. nóvember 2024.

Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með þriðjudeginum 26. mars 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. apríl 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign