F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Grófarhús verkfræðihönnun, EES útboð nr. 15981
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Hönnunin skal vinna samkvæmt útboðs- og tæknilýsingu þessari, ásamt þeim gögnum sem þar er vísað til.
Kaupandi óskar hér með eftir verðtilboðum í hönnun og ráðgjöf vegna verkefnisins, sem hér eftir er nefnt “Grófarhús – verkfræðihönnun” einnig nefnt verkefnið í útboðsgögnum þessum.
Verkfræðihönnun innifelur for- og fullnaðarhönnun á breytingu og stækkun á Grófarhúsi, útboðsgögn fyrir verkframkvæmd, kostnaðaráætlanir og ráðgjöf á verktíma.
Þeir aðilar sem skila inn tilboðum í verkefnið eru hér eftir nefndir bjóðendur eða ráðgjafar. Óskað er eftir tilboðum í ráðgjöf á eftirfarandi fagsviðum:
a) Burðarvirki
b) Pípulagnakerfi
c) Loftræsikerfi
d) Rafkerfi
e) BIM stjórn
f) Byggingareðlisfræði – rakagreining
g) BREEAM-RFO sönnunargögn
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 10:00 þann 21. mars 2024.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 23. apríl 2024.