Umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið ,,Leiksvæði og stígar í Urriðaholti”.
Verkið felst í gerð göngustíga með götulýsingu og leiksvæða á átta svæðum í Urriðaholti.
Helstu magntölur eru:
Uppsetning leiktækja 20 stk.
Hellulögn 1.190 m2
Einingaþrep 380 stk.
Uppsetning ljósastólpa 35 stk.
Grasþakning 4.000 m2
Lokaskiladagur verksins er 1. nóvember 2024.
Útboðsgögn eru afhent á rafrænu formi hér fyrir neðan á vef Garðabæjar.
Tilboð skulu hafa borist Strendingi ehf. Dalshrauni 3, eigi síðar en fimmtudaginn 28. mars 2024 kl. 11:30, þar sem þau verða opnuð.
Umhverfissvið Garðabæjar