Home Fréttir Í fréttum 22.04.2016 Leikskóla- og skólalóðir 2016 – Fallvarnar- og yfirborðsefni, 2ja umslaga útboð

22.04.2016 Leikskóla- og skólalóðir 2016 – Fallvarnar- og yfirborðsefni, 2ja umslaga útboð

196
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Leikskóla- og skólalóðir 2016 – Fallvarnar- og yfirborðsefni, 2ja umslaga útboð nr. 13683.

Verkið felst í því að útvega og koma fyrir fallvarnarefni við leiktæki og yfirborðsmeðhöndlun á malbiki (málning / gúmmíefni) á leikskóla- og skólalóðum í eigu Reykjavíkurborgar.
Um er að ræða 2 skólalóðir og 2 leikskólalóðir sem skiptast þannig:
Fallvarnarefni / fillt Gervigras / Gúmmíhellur / Gúmmímottur
Yfirborðsefni
Málning /
Afrétting undir gúmmíyfirborð /
Gúmmíyfirborð
Hraunborg 222 256 42
Bakkaborg 97 107 84
Breiðagerðisskóli 460 0
Ölduselsskóli 1.002 1.024 0
Samtals: 1.321 m2 1.847 m2 126 m2
Magntölur fyrir hvern verkþátt eru áætlaðar.  Heildarmagnið lætur nokkuð nærr en skipting innan verkþáttar getur breyst verulega eða jafnvel fallið út.  Þetta á einkum við um gervigrasið og yfirborðsmeðhöndlun á malbiki.
Um er að ræða tveggja umslaga útboð sem felst í því að bjóðendur skila tilboðum sínum í tveimur lokuðum umslögum:
Umslag A, sem merkt er nafni bjóðanda, hefur að geyma lýsingu á þeim búnaði sem hann hyggst bjóða til sölu ásamt öllum þeim upplýsingum sem þarf til að unnt sé að meta tilboð hans sjá nánar kafla 1.1.8 og 2.
Umslag B, sem einnig er merkt nafni bjóðanda, geymir verðtilboð hans þ.e útfyllt tilboðsblað sjá nánar kafla 3,
Báðum umslögum er skilað til kaupanda á sama tíma.  Umslag A. er opnað fyrst, lausn bjóðanda metin og henni gefin einkunn skv. valforsendum.  Tilboð sem fá minna en 60% í heildareinkunn í matsviðmiði verða talin ófullnægjandi og vísað frá.  Þegar öll tilboð hafa verið metin á þennan hátt og niðurstaðan gerð opinber fer fram opnun á umslagi B.  Þá eru verðtilboð þeirra bjóðenda er halda áfram lesin upp ásamt kostnaðaráætlun kaupanda.  Einkunn fyrir verðtilboð samkvæmt reikni¬reglu, sem birt er í útboðsgögnum, verður síðan bætt við þá einkunn sem fyrir liggur á lausn bjóðanda þannig að niðurstaða verður heildarmat á hverju tilboði fyrir sig.  Með þessu fyrirkomulagi er lögð áhersla á mat faglegra þátta í lausnum bjóðenda og þar með jafnræði þeirra.
Þess er krafist að bjóðendur uppfylli eftirfarandi skilyrði:
• Bjóðandi skal veita viðhaldsþjónustu fyrir þau yfirborðsefni sem hann bíður
Verktaki getur hafið verkið í byrjun júlí og verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 10. ágúst 2016.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á kr. 3.000 frá kl. 13:00 þriðjudaginn 29. mars 2016 í afgreiðslu þjónustuvers Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12 – 14, 105 Reykjavík.
Opnun tilboða: Föstudaginn 22. apríl 2016 kl. 10:00 í Borgartúni 12-14. Tilboðum skal skilað í þjónustuver Reykjavíkurborgar.