Home Fréttir Í fréttum Keypti neðst á Laugavegi fyrir 1,3 milljarða

Keypti neðst á Laugavegi fyrir 1,3 milljarða

205
0
Norska athafnakonan Kirsten Holmen og Daníel Þór Magnússon, sjóðsstjóri Fasteignaauðs hjá Kviku banka, skömmu í aðdraganda þess að ísbarinn opnaði árið 2019. Ljósmynd: Eggert Jóhannesson

Sumarið 2019 opnaði fyrsti svokallaði ísbar á Íslandi en slíkir barir eru vel þekktir víða um heim. Norsk athafnakona Kirsten Holmen festi í lok síðasta árs kaup á fasteignum að Laugavegi 4-6, 1‏.133 fermetra verslunarhúsnæði þar sem hún hefur meðal annars rekið ísbar frá árinu 2019 og Skólavörðustíg 1a, 333 fermetra húsnæði þar sem rekið er lítið íbúðahótel undir merkjum Ava Apartments.

<>

Kaupverðið var samtals 1.263 milljónir króna en seljandi er Fasteignaauður II, sjóður í umsjón Kviku banka. Kirsten var fyrsti leigutakinn í húsinu eftir að Fasteignaauður II eignaðist fasteignirnar og réðst í endurbætur á húsnæðinu fyrir nokkrum árum.

„Fasteignin er að mörgu leyti einstök og hún býður upp á fjölbreytta notkun. Þetta er eina verslunarhúsið í Reykjavík sem tengir saman tvær helstu verslunargötur borgarinnar, Skólavörðustíg og Laugaveg.

Tenging eldri húsa við nýbyggingu er vandasöm en arkitektum hefur tekist það mjög vel,“ sagði Daníiel Þór Magnússon, sjóðsstjóri Fasteignaauðs, í viðtali við Morgunblaðið árið 2018.

Verið er að klára endurbætur á ísbarnum sem opnar aftur á næstu dögum.

Heimild: Vb.is