Eigendur 598 íbúða í Grindavík hafa óskað eftir endurmati brunabóta og af þeim hafa 244 umsóknir þegar verið afgreiddar. Þetta kemur fram í umsögn HMS við frumvarp um kaup ríkisins á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
Endurskoðun umræddra íbúða hefur leitt til hækkunar sem nemur þremur milljörðum króna. Samkvæmt frumvarpinu mun kaupverð íbúða nema 95 prósent af brunabótamati.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun kemur með ýmsar ábendingar í umsögn sinni og segir meðal annars að eftir að ábyrgð á framkvæmd brunabótamats var flutt til HMS árið 2022 hafi stofnunin orðið þess áskynja að almennt hafi vantað upp á að eigendur íbúða óskuðu eftir endurmati í kjölfar breytinga eða endurbóta.
„Það hefur leitt til þess að margar húseignir eru vanmetnar í brunabótamati og hefur stofnunin lagt stóraukna áherslu á að auka vitund almennings um þessa áhættu,“ segir í umsögninni.
HMS bendir enn fremur á að brunabótamati sé ekki ætlað að endurspegla markaðsvirði húseigna, heldur sé það grunnur vátryggingafjárhæðar. Þá sé við ákvörðun brunabótamats ekki tekið tillit til ýmissa verðmæta sem ekki geta brunnið, til að mynda steyptra hluta fyrir utan húsið.
Stofnunin varar einnig við því að ekki sé víst að málsmeðferð verði lokið í öllum málum fyrir þann tíma sem íbúar í Grindavík verða að hafa óskað eftir kaupum ríkisins á fasteign sinni en fresturinn rennur út 1. júlí næstkomandi.
Heimild: Visir.is