Home Fréttir Í fréttum 12.03.2024 Vopnafjörður, lenging Löndunarbryggju, dýpkun og stálþil

12.03.2024 Vopnafjörður, lenging Löndunarbryggju, dýpkun og stálþil

114
0
Vopnafjörður

Hafnarstjórn Vopnafjarðar óskar eftir tilboðum í verkið „Vopnafjörður, lenging Löndunarbryggju, dýpkun og stálþil “.

<>

Helstu verkþættir eru:

· Dýpkun á klapparbotni, um 11.157 m3 og sprengd rás fyrir þil.

· Jarðvinna, fylling og þjöppun.

· Steypa 42 akkerissteina.

· Reka niður 106 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð GHZ24-2 og ganga frá stagbitum og stögum.

· Steypa um 137 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. september 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með þriðjudeginum 20. febrúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. mars 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign